Námskeið í tónheilun 2025
Næsta námskeið verður í byrjun janúar.
Vinnustofa – Langar þig að læra tónheilun?
Fyrir hverja?
Vinnustofan er sérstaklega hugsuð fyrir þau sem langar að halda tíma í tónheilun og læra grunnatriðin í að spila á kristalsskálar. Tónheilun er hægt að nota eina sér eða til dæmis með jóga nidra, núvitund, hugleiðslu, með nuddi eða í kennslustofum.
Hver kennir?
Leiðbeinandi á vinnustofunni er Berglind Baldurs.
Berglind kynntist tónheilun fyrst fyrir um 8 árum. Undanfarin ár hefur hún verið með fasta tíma í djúpslökun með tónheilun og líka staka viðburði. Hún hefur meðal annars verið með tíma í tónheilun hjá Yoga líf í Kópavogi, Yogavitund í Garðabæ og hjá Jógaveru á Akranesi.
„Þetta var frábært námskeið sem er góður grunnur að byggja á fyrir þá sem vilja læra að spila á kristalsskálar. Virkilega gaman að læra á þessar fallegu skálar og fínt hvað hópurinn var lítill svo allir fengu að æfa sig.“
— Eva Hrund Egilsdóttir
Hér er hægt að skrá sig á biðlista fyrir næstu vinnustofu: litilskref@litilskref.is
Hvað þarf að hafa með?
- Stílabók og skriffæri
- Létt snarl ef þú vilt
- Gott að vera í þægilegum fötum
- Kristalsskál og áhöld ef þú átt þannig (ekki skylda)
- Á staðnum eru dýnur, teppi, púðar, glös, vatn og te
Hvað verður kennt?
- Grunnþjálfun í tónheilun
- Hvernig við hlustum, skynjum og upplifum tónana
- Þú færð æfingu í að spila á fleiri en eina skál í einu
- Þú lærir að beita mismunandi áhöldum
- Uppbygging tíma, hvernig tónheilun fer fram og hvað þarf að hafa í huga
- Tímastjórnun
- Líkamsbeiting
- Það verða kristalsskálar og áhöld á staðnum sem þú æfir þig á (til viðbótar við þína eigin ef þú átt)
- Þú færð að kynnast fleiri hljóðfærum og hvernig þau eru oft notuð í tónheilun
- Þú færð vinnubók með helstu upplýsingum
*Takmarkaður fjöldi á hverju námskeiði svo það verði nægur tími í æfingar.