Þvoðu þér í framan stelpa
Höfundur Rachel Hollis
Þessi bók er skrifuð fyrir ungar konur sem eru að reyna að halda öllum boltum á lofti, með misjöfnum árangri. Hvort sem það tengist fjölskyldulífinu, fyrirtækjarekstri eða öðru þá er Rachel Hollis með reynslusögu fyrir þig.
Rachel fjallar um streituna sem fylgir nútímasamfélagi og kemur með góð ráð til að hjálpa konum að draga aðeins úr kröfunum á sjálfar sig.
Þessi bók er bæði ögrandi og upplífgandi en í henni flettir Rachel ofan af tuttugu lygum og rangtúlkunum sem koma of oft í veg fyrir að við lifum gleðiríku og afkastamiklu lífi; lygar sem við höfum sagt sjálfum okkur svo oft að við erum hættar að heyra þær.
Hljóðbók á Storytel.
„Finnst þér stundum eins og allir séu með líf sitt á hreinu nema þú? Ef þú svaraðir því játandi þá vil ég segja þér svolítið: Það er lygi.“ Rachel Hollis
Umfjöllunarefni
- Foreldrahlutverkið
- Hjónaband
- Fósturforeldri
- Uppeldi
- Áföll
- Streita
- Andlitslömun
- Drykkja
- Frumkvöðlar
- Fyrirtækjarekstur
- Undirbúningur fyrir maraþon
- Mömmuskömm / mammviskubit
Hungur
Minning um líkama (minn)
Sjálfsævisaga Roxane Gay
Í þessari einlægu sjálfsævisögu ræðir metsöluhöfundurinn Roxane Gay upplifun sína af því að búa í líkama sem hún kallar „gríðarlega óstýrilátan.” Hún lítur skilningsríkum og krítískum augum yfir barnæsku sína, unglingsárin og þrítugsaldurinn — þar á meðal ofbeldisverk sem markaði þáttaskil í ungu lífi hennar — og færir lesendur inn í nútíðina og raunveruleika, sársauka og gleði daglegs lífs hennar.
Roxane veltir fyrir sér mörgum samfélagslegum málefnum, eins og líkamsímynd, offitu, magaermiaðgerðum, Biggest Loser og megrunariðnaðinum. En hún fjallar líka um hvernig við getum sýnt hvert öðru meiri nærgætni og góðvild.
Um höfundinn
Roxane Gay er höfundur ritgerðasafnsins Bad Feminist, sem var á metsölulista New York Times; skáldsögunnar An Untamed State, sem var tilnefnd fyrir Dayton Peace-verðlaunin, og smásagnasafnanna Difficult Women og Ayiti. Hún er dálkahöfundur hjá New York Times en hefur einnig skrifað fyrir Time, MsSweeney’s, Virginia Quarterly Review, Los Angeles Times, The Nation, The Rumpus, Bookforum og Salon. Sögur hennar hafa einnig verið valdar í smásagnasöfnin The Best American Short Stories 2012, The Best American Mystery Stories 2014 og önnur safnrit. Hún er höfundur World of Wakanda-teiknimyndasögunnar sem kom út hjá Marvel. Hún býr í Lafayette, Indiana, og stundum í Los Angeles. Roxane Gay hélt lokaræðunu á Me Too-ráðstefnunni 2019 í Reykjavík.
Útgáfa Hungur var styrkt af Miðstöð íslenskra bókmennta og sjóðnum Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku.
Verðlaun
Hungur hlaut Lambda bókmenntaverðlaunin og var valin ævisaga ársins hjá Guardian og Goodreads. Bókin var valin ein af bókum ársins hjá People, Elle, Washington Post, Chicago Tribune, BookRiot og PopSugar.
Umfjöllunarefni
- Matarfíkn
- Líkamsvirðing
- Offita
- Fordómar
- Magaermi
- Kynferðisofbeldi
- Menntun
„Sagan af líkama mínum er ekki saga af stórsigrum. Þetta er ekki minning um megrun. Hér mun ekki birtast ein einasta mynd af mér grannri þar sem ég stend í annarri gallabuxnaskálm míns fyrra, feita sjálfs. Þetta er ekki bók sem
mun veita hvatningu. Ég bý ekki yfir einstökum skilningi um hvernig á að vinna bug á óstýrilátum líkama og óstýrilátri matarlyst. Saga mín er ekki saga velgengni. Saga mín er, einfaldlega sönn.”Roxane Gay