Námsefni við ungmennabókina Á morgun, þegar stríðið hófst. Námsefnið er fyrir 9.-10. bekk grunnskóla og fyrstu bekki framhaldsskóla. Kennarar og skólastjórnendur geta haft samband við útgefanda í netfangið bb@bergmalutgafa.is til að fá nánari upplýsingar.
Kynning á námsefni eftir Bergmál útgáfu.Hafið endilega samband til að fá nánari upplýsingar.
#1

Ellie og vinir hennar ákveða að fara í útilegu í óbyggðum Ástralíu, djúpt ofan í gili sem kallast Víti. Þegar þau snúa aftur heim komast þau að því að óvinaher hefur ráðist inn í landið og að fjölskyldur þeirra eru horfnar.
Tilgangur bókanna
Að ýta undir lestraráhuga, lesskilning og orðaforða unglinga, sérstaklega stráka.
Um höfundinn
John Marsden er ástralskur grunnskólakennari og rithöfundur sem hefur kennt börnum og unglingum í áratugi. Honum fannst mikil þörf vera á bókum sem höfðuðu til unglingsstráka, sem honum fannst ekki ná jafnmiklum árangri í lestri og stelpur. Hann ákvað því að skrifa bókaflokkinn Á morgun-serían, sem eru alls 7 bækur.
Tilgangur John Marsden með skrifunum var að ýta undir lestraráhuga, lesskilning og orðaforða unglinga, sérstaklega unglingsstráka, sem honum fannst vanta bækur sem vöktu áhuga þeirra.
Þetta er vinsælasti ungmennabókaflokkur í Ástralíu.
Söguhetjurnar
Söguhetjurnar eru hópur unglinga sem voru í útilegu í óbyggðum Ástralíu þegar ráðist var inn í landið. Fjölskyldur þeirra og vinir eru horfin, og þau reyna af öllum mætti að berjast á móti innrásarhernum til að bjarga sínu fólki.
Sagan gefur innsýn í lífið á hernumdu svæði, þar sem allar daglegar venjur eru foknar út í veður og vind. Í gegnum sögumanninn, Ellie, fær lesandinn að upplifa óttann sem þau upplifa en líka lífsviljann, sem birtist í öllum þeim hugmyndum sem vinahópurinn fær til að leggja sitt af mörkum í þessu óvænta stríði. Vináttan er sterk og ástin er aldrei langt undan.
Sterk persónusköpun höfundar fær lesandann til að hrífast með vinunum og upplifa í gegnum þau hvaða áhrif stríðið hefur á þau.
Námsefni á unglingastigi
Námsefni er til fyrir fyrstu bókina í bókaflokknum, Á morgun, þegar stríðið hófst. Námsefnið er ætlað 9.-10. bekk. Til viðbótar við málfræðiverkefni, ljóðaskrif, skriftaræfingar, þrautir og fleira, eru ýmis samfélagsleg mál rædd sem eru mikilvæg í dag. Þar á meðal eru verkefni sem ýta undir gagnrýna hugsun og hópumræður, meðal annars um vopn, stríð, ofbeldi, styrkleika, vináttu og fleira.
Námsefni verður einnig gefið út fyrir næstu bækur í bókaflokknum.